Segir Pólverja bjóða hættunni heim

Frá undirritun bráðabirgðasamkomulags milli bandarískra og pólskra stjórnvalda í gær.
Frá undirritun bráðabirgðasamkomulags milli bandarískra og pólskra stjórnvalda í gær. Reuters

Háttsettur rússneskur herforingi segir ákvörðun pólskra stjórnvalda um að heimila Bandaríkjamönnum að setja upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi bjóði hættunni heim fyrir Pólverja um að ráðist verði inn í landið. Interfax fréttastofan hefur þetta eftir Anatoly Nogovitsyn í dag. 

Er yfirlýsing Nogovitsyn sú harðorðasta sem hefur komið frá rússneskum stjórnvöldum vegna áætlana um uppsetningu eldflaugakerfa í ríkjum fyrirverandi Sovétríkjanna.

Pólverjar samþykktu í gærkvöld að Bandaríkjamenn fengju að setja upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi, gegn því að þeir fengju aðstoð Bandaríkjanna í varnarmálum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert