Kúbustefnan verði endurskoðuð

Richard Lugar.
Richard Lugar.

Kominn er tími til að Bandaríkjastjórn endurskoði stefnu sína gagnvart Kúbu, að mati hátt setts þingmanns úr röðum repúblikana.

Öldungadeildarþingmaðurinn Richard Lugar, sem fer fyrir repúblikönum í utanríkismálanefnd þingdeildarinnar, færir rök fyrir þessu í nýrri skýrslu, þar sem hann leggur til að Kúbverjar geti keypt bandarískar vörur í auknum mæli.

Slíkar breytingar myndu valda straumhvörfum í samskiptum ríkjanna sem hafa ekki átt í fullu diplómatísku sambandi frá árinu 1962. 

Meðal þess sem horft er til er að bandarískir bændur gætu selt mun meira af mat til Kúbu.

Í staðinn fyrir viðskiptin fengju Kúbverjar aðgang að bandarískum vörum, en á undanförnum misserum hafa kínverskar vörur, svo sem örbylgjuofnar, slegið á vöruskortinn á Kúbu.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur boðað endurskoðun á stefnunni gagnvart Kúbu án þess að útskýra það í nánari smáatriðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert