The Lancet fordæmir ummæli páfa

Ummæli páfa um smokkinn virðast ætla að koma margfalt í …
Ummæli páfa um smokkinn virðast ætla að koma margfalt í bakið á honum WILL BURGESS

Eitt virtasta læknarit heims, The Lancet, sakar í nýjasta tölublaði sínu ásakanir á Benedikt XVI páfa um að afbaka vísindi í ummælum sínum um smokkanotkun. 

Þar segir að nýleg ummæli páfa um að smokkar geti aukið á alnæmisvandann séu algjörlega röng og geti haft hræðilegar afleiðingar í för með sér. Páfinn sagði í heimsókn sinni til Afríku fyrr í mánuðinum að hinum „grimmilega faraldri“ ætti að halda í skefjum með skírlífi og einkvæni fremur en með smokkanotkun. Hann sagði að „hin hefðbundnu gildi kirkjunnar hefðu sannað sig sem eina örugga leiðin til að koma í veg fyrir útbreiðslu HIV“.

Að sögn BBC er svargrein The Lancet óvenjuhvöss á hendur páfa. Þar segir m.a. hann hafi opinberlega snúið út úr vísindalegum sönnunum til að koma á framfæri Kaþólskum kreddum. „Hvort þessar rangfærslur páfans eru vegna hans eigin fáfræði eða gagnger tilraun til að misnota vísindin til stuðnings við kaþólska hugmyndafræði er óljóst,“ segir í blaðinu. Þar er Vatikanið jafnframt hvatt til þess að draga ummælin til baka, þar sem ummæli svo áhrifamikils manns geti haft skelfilegar afleiðingar á heilsufar milljóna manna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert