Skotheld vesti rjúka út

Skotheld vesti hafa rokið út í aðdraganda þingkosninganna á Indlandi en frambjóðendur vilja tryggja öryggi sitt með vestum sem þó spilla ekki útliti þeirra. Fyrirferðarlítil vesti hafa því selst vel.

Þung og óþægileg skotheld vesti heyra að mestu sögunni til.

Hundruð þúsunda lögreglumanna er ætlað að tryggja að kosningarnar fari vel fram en þær standa yfir í um mánuð í þessu fjölmennasta lýðræðisríki heims.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert