Enn skelfur Los Angeles

Jarðskjálfti varð á ný í Los Angeles í Kalíforníu í kvöld. Skjálftinn mældist 4,1 stig á Richter. Ekki er vitað um slys á fólki eða skemmdir á mannvirkjum.

Annar skjálfti, sem mældist 4,7 stig, varð á sunnudagskvöld. Báðir skjálftarnir áttu upptök sín um 16 km suðvestur af miðborg Los Angeles.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert