Óttast að danskur sjávarútvegur drukkni í skrifræði ESB

Danskir útgerðarmenn eru uggandi yfir reglugerðum Evrópusambandsins
Danskir útgerðarmenn eru uggandi yfir reglugerðum Evrópusambandsins Rax / Ragnar Axelsson

Hagsmunasamtök danskra útgerðarmanna og sjómanna, Danmarks Fiskeriforening,  óttast að endanlega sé verið að drekkja dönsku sjávarútvegi í reglugerðarfargani Evrópusambandsins.

Svein-Erik Andersen, formaður samtakanna, segir í fréttatilkynningu sem samtökin sendu frá sér í dag að framkvæmdastjórn ESB, undir forystu Svía, ætli að leiða yfir Dani óframkvæmanlega löggjöf. Landsamaband íslenskra útvegsmanna greinir frá þessu í dag.

Danir eru með virkasta fiskveiðieftirlit allra landa innan ESB að sögn Andersen, þar sem eftirlit annarra landa standist engan samjöfnuð. Á þessu hyggist Evrópusambandið nú ráða bót með því að koma á nýjum reglugerðum um fiskveiðieftirlit þar sem eitt skuli yfir alla ganga. Nýja löggjöfin verður  til umræðu á fundi sjávarútvegsráðherra ESB í Lúxemborg í næstu viku og fyrir jól mun taka gildi ný reglugerð sem gildir um veiðar í Norðursjó, Skagerrak og Kattegat.

Verði umræddar reglugerðir að veruleika bendir Danmarks Fiskeriforening á nokkrar afleiðingar þeirra í fréttatilkynningu sinni:

  • Reglur um meðafla verða svo strangar að veiðar leggjast af að verulegu leyti
  • Kröfur um veiðarfæri kalla á óraunhæfar breytingar
  • Útgerðir sem hafa hefðbundið veitt í Skagerrak og Kattegat munu missa stóran hluta aflahlutdeildar vegna breyttra reglna um útgerðir

Fréttatilkynning Danmarks Fiskeriforening

Frétt LÍÚ um málið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert