Bloomberg marði sigur
Borgarstjórinn í New York, Michael Bloomberg, fór með sigur af hólmi í kosningunum þar í gær. Kom það fréttaskýrendum á óvart hve mjótt var á munum en Bloomberg fékk 51% atkvæða á meðan keppinauturinn, demókratinn William Thompson fékk 46% atkvæða.
Það er því ljóst að Bloomberg mun stýra borginni þriðja kjörtímabilið í röð en hann lét breyta lögum borgarinnar á þann veg að borgarstjóra væri heimilt að sitja fleiri en tvö kjörtímabil. Er talið að kosningabaráttan hafi kostnað Bloomberg gríðarlegar fjárhæðir og áttu flestir von á stórsigri borgarstjórans.
Er haft eftir aðstoðarmanni hans í The New York Times í dag að öllum hafi brugðið við hve lítill munurinn var. Í sigurræðu sinni dró Bloomberg hins vegar úr því hversu lítill munurinn væri og sagði baráttuna hafa verið harða í erfiðu árferði.
Bloomberg, sem er 67 ára að aldri, tók við embætti borgarstjóra New York árið 2001 er Rudolph Giuliani lét af embætti. Bloomberg hefur verið hælt óspart fyrir að hafa breytt New York borg úr því að vera eina hættulegustu og skítugustu borg Bandaríkjanna í eina af hreinustu og öruggustu borgum landsins.
Meðal afreka hans á því sviði eru nefnd atriði eins og bygging lúxusbygginga, að hafa ákveðið að breyta Times Square í göngugötu, gert veitingahúsum að sýna á matseðlum hversu margar kaloríur eru í réttum. Að hafa bannað reykingar á börum og að íhuga að banna reykingar í almenningsgörðum í borginni.
Á sama tíma hafa gagnrýnendur hans haldið því fram að hann hafi einungis flutt ýmis vandamál út úr borginni og að margir íbúar borgarinnar sakni fyrri tíma og þeirrar óreiðu sem einkenndi borgina.
Bloomberg er afar auðugur maður en eignir hans eru metnar á 17,5 milljarða Bandaríkjadala, 2.186 milljarða króna, af Forbes tímaritinu. En hann stofnaði meðal annars Bloomberg fréttaveituna á sínum tíma. Talið er að hann hafi dælt um einni milljón dala, 125 milljónum króna, í kosningabaráttuna á dag, síðustu vikurnar og er talið að kosningabaráttan hafi kostað hann um 100 milljónir dala, 12,5 milljarða króna.
Erlent »
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. september 2008, Erlent Bloomberg stefnir á þriðja kjörtímabilið
- Miðvikudagur, 15. september 2010, Erlent Þrengt að reykingafólki í New York
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Erlent Bloomberg má bjóða sig aftur fram
- Mánudagur, 3. maí 2010, Erlent Útiloka al-Qaeda
- Miðvikudagur, 28. janúar 2009, Erlent Óttast að hnignunarskeið áttunda áratugarins endurtaki sig
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
-
Atkvæðagreiðslan öllum í hag
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden



































