Dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi

Russell Williams
Russell Williams Reuters

Kanadískur dómstóll dæmdi ofursta í hernum í tvöfalt lífstíðarfangelsi í dag fyrir morð, kynferðislegt ofbeldi og þjófnað á  heimilum kvenna.  Ofurstinn Russell Williams viðurkenndi fyrir rétti fyrr í vikunni að hafa banað tveimur konum. Þá játaði hann sig sekan um 82 innbrot þar sem hann stal undirfötum kvenna.

Upp komst um leynilíf Williams er hin 27 ára gamla Jessica Lloyd hvarf sporlaust í janúar. Russel gaf sig sjálfur fram til lögreglu er fótspor hans fundust á heimili Lloyd og leiddi hann lögreglu að líki hennar, sem falið var í námunda við heimili Williams.

Nánari rannsókn leiddi til þess að upp komst um annað morð Williams á Marie-France Comeau. Var hann dæmdur fyrir  að hafa beitt konurnar tvær kynferðislegu ofbeldi áður en þær létust.


Marie France Comeau
Marie France Comeau HO
Hluti af nærfatasafninu sem Williams stal.
Hluti af nærfatasafninu sem Williams stal. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert