Skutu félaga sinn til bana fyrir mistök

Ísraelskir hermenn flytja særðan félaga á sjúkrahús í kjölfar átakanna …
Ísraelskir hermenn flytja særðan félaga á sjúkrahús í kjölfar átakanna í gær. Reuters

Ísraelskir hermenn skutu á félaga sína fyrir mistök með þeim afleiðingum að einn hermaður lét lífið og fjórir særðust. Atvikið átti sér stað skammt frá landamærunum við Gaza í gær. Talsmaður hersins segir að hermennirnir hafi lent í átökum við palestínska uppreisnarmenn á svæðinu

Ísraelsher segir að uppreisnarmennirnir hafi reynt að koma sprengiefni fyrir undir öryggisgirðingu við landamærin.

Mikil spenna ríkir við landamærin og að undanförnu hafa fjölmörg átök brotist út, m.a. komið til skotbardaga.

Herinn segir að málið sé til rannsóknar.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert