Egyptar fá nýja stjórnarskrá

Shenouda (t.v.), páfi kristnu koptakirkjunnar í Egyptalandi, greiðir atkvæði í …
Shenouda (t.v.), páfi kristnu koptakirkjunnar í Egyptalandi, greiðir atkvæði í Kaíró í dag. Koptar eru um 10% þjóðarinnar. Reuters

Egyptar greiða í dag atkvæði um breytingar á stjórnarskránni sem sérstök nefnd sérfræðinga, skipuð af bráðabirgðastjórn herforingjanna, lagði til. Fimm vikur eru frá því að Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti, varð að segja af sér í kjölfar mikilla mótmæla gegn einræðisstjórn hans.

Hart er deilt um um tillögurnar og margir hafa bent á að of skammur tími hafi gefist til að semja tillögurnar. En herforingjastjórnin sagðist vildi fá strax niðurstöðu til þess að hún gæti efnt til þing- og forsetakjörs innan hálfs árs og þá notast við reglur í nýrri stjórnarskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert