Harður jarðskjálfti í Japan

Steinstytta af Jizou, verndara ferðamanna og barna, innan um hrunin …
Steinstytta af Jizou, verndara ferðamanna og barna, innan um hrunin hús í borginni Ishimaki í Japan. Reuters

Jarðskjálfti, sem mældist 6,1 stig, varð í Ibarakisýslu suður af Fukushima kjarnorkuverinu í Japan í morgun. Ekki var gefin út flóðbylgjuviðvörun í kjölfarið. 

Byggingar skulfu í höfuðborginni Tókýó en ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið.

Að sögn japanska ríkisútvarpsins var flugumferð um Narita flugvöll stöðvuð tímabundið í öryggisskyni í kjölfar skjálftans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert