„Ólík andlit en sama hatrið“

Hægri öfgamenn ætla að ganga í gegnum hverfi múslima.
Hægri öfgamenn ætla að ganga í gegnum hverfi múslima. Reuters

Fjöldi fólks hefur í dag mótmælt göngu hægri öfgamanna í London, en göngumenn ætluð að fara í gegnum Tower Hamlet-hverfið þar sem margir múslimar búa. Þeir sem mótmæla göngunni halda á spjöldum með myndum af norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik og Tommy Robinson leiðtoga EDL.

English Defence League (EDL), sem eru samtök hægri öfgamanna, höfðu í dag skipulagt göngu í gegnum hverfi múslima. Lögregla hefur bannað göngumönnum að fara í gegnum hverfið, en þeir segjast ekki ætla að ætla að fara eftir þessum fyrirmælum.

Stór hópur fólks hefur safnast saman til að mótmæla göngunni. Fólkið heldur á spjöldum með myndum af Anders Behring Breivik og Tommy Robinson leiðtoga EDL. Fyrir ofan myndirnar stendur „Ólík andlit en sama hatrið“.

Lögregla er með fjölmennt lið og reynir að koma í veg fyrir að átök brjótist út.

Lögregla er með mikinn viðbúnað.
Lögregla er með mikinn viðbúnað. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert