Hart sótt að Perry

Hart var sótt að Rick Perry vegna afstöðu hans til félagsmála og atvinnumála og ferils hans sem ríkisstjóri í Texas þegar nokkrir mögulegir forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins tókust á í sjónvarpskappræðum í gær. Repúblikanarnir Mitt Romney, Ron Paul og Rick Santorum voru með Perry í salnum.

Kappræðurnar minna á að nú styttist óðum í forsetakosningarnar 2012.

Barack Obama forseti hefur átt undir högg að sækja og hefur Perry jafnvel mælst með meira fylgi en forsetinn í könnunum að undanförnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert