Laus úr fangelsi hjá Hamas
Ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit ræddi við egypska sjónvarpið um lífsreynslu sína. Hann var látinn laus í dag eftir meira en fimm ára vist í fangelsi hjá Hamas-samtökunum.
Palestínskir stríðsmenn handtóku Shalit árið 2006. Þeir fóru um jarðgöng frá Gaza-svæðinu og sátu fyrir áhöfn ísraelsks skriðdreka. Shalit var veiklulegur og fölur þegar hann talaði við egypska sjónvarpið með aðstoð túlks. Hann kvaðst þó vera við góða heilsu.
„Ég fékk fréttirnar fyrir viku og mér fannst þá að það væri síðasta tækifærið til þess að láta mig lausan. Ég get ekki lýst tilfinningum mínum þá en ég fann að ég átti erfiðar stundir fyrir höndum,“ sagði Shalit.
Hann þakkaði þeim sem unnu að lausn hans úr fangelsi og sagði að hann vonaði að þeir 5.000 Palestínumenn sem enn eru í ísraelskum fangelsum verði látnir lausir.
„Ég yrði mjög ánægður ef þeir væru allir látnir lausir svo þeir geti farið aftur til fjölskyldna sinna og lands síns. Ég yrði mjög glaður ef þetta gæti gerst,“ sagði Shalit.
Meira en eitt þúsund Palestínumenn voru látnir lausir í skiptum fyrir Shalit samkvæmt samningi milli ríkisstjórnar Ísrael og Hamas. Egyptar höfðu milligöngu um samningsgerðina.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Erlent Shalit kominn til Egyptalands
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Erlent Shalit kominn til Ísraels
- Þriðjudagur, 11. október 2011, Erlent Verður loks látinn laus
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Erlent Átök og fögnuður við fangaskipti
- Mánudagur, 17. október 2011, Erlent Ljóst að fangaskiptin verða á morgun
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































