Skipstjórinn laus úr haldi

Francesco Schettino, skipstjóri Costa Concordia, í lögreglufylgd.
Francesco Schettino, skipstjóri Costa Concordia, í lögreglufylgd. Reuters

Skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem strandaði síðastliðinn föstudag var látinn laus úr fangelsi í nótt og sætir nú stofufangelsi á heimili sínu í bænum Meta di Sorrento.

Skipstjórinn, Francesco Schettino, verður væntanlega kærður fyrir að bera ábyrgð á dauða fjölda manna og fyrir að hafa yfirgefið skipið á ögurstundu, þegar fjöldi farþega var enn um borð.

Nú hefur verið staðfest að 11 létust í skipsstrandinu og 20 er enn saknað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert