Páfi segir kaþólsku kirkjuna hafa veikst

Benedikt páfi XVI segir að dregið hafi úr trúverðugleika kirkjunnar.
Benedikt páfi XVI segir að dregið hafi úr trúverðugleika kirkjunnar. AP

Benedikt XVI. páfi viðurkenndi í dag að kynferðisbrot kaþólskra presta gegn börnum hefði dregið úr trúverðugleika kaþólsku kirkjunnar á Írlandi.

„Þeir misnotuðu einstaklinga og drógu úr trúverðugleika þess boðskaps sem kirkjan ber,“ segir í tilkynningu frá páfa í tilefni af alþjóðlegri ráðstefnu kaþólsku kirkjunnar um altarissakramentið sem haldin var í Dublin í dag.

Páfi sagði erfitt að skilja hvers vegna tilteknir einstaklingar á vegum kirkjunnar hefðu brotið gegn skjólstæðingum sínum. Hann kallaði umrædda presta syndara og sagði brot þeirra sérstaklega alvarleg þar sem þeir meðtækju reglulega altarissakramentið.

Fyrr í vikunni átti páfi fund með fórnarlömbum kynferðisbrota sem framin voru af prestum.

Kaþólska kirkjan hefur haft mjög sterk ítök í írsku samfélagi. Sú staða hefur þó veikst umtalsvert undanfarin misseri í kjölfar þess að mál tengd kynferðisafbrotum gegn bornum innan kirkjunnar hafa komið upp á yfirborðið. Sérstaklega eftir að yfirmenn kirkjunnar reyndu að hylma yfir sum brot.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert