Sýnikennsla endaði með sprengingu

Sprengjurárásir eru tíðar í Írak. Myndin er úr safni.
Sprengjurárásir eru tíðar í Írak. Myndin er úr safni. AFP

Nokkrir uppreisnarmenn úr röðum súnní múslíma létust þegar foringi þeirra var að sýna þeim hvernig nota eigi sprengjubelti til sjálfsvígsárása. Fyrir mistök handlék hann  raunverulegt sprengiefni. Atvikið átti sér stað í dag norður af Bagdad, höfuðborg Íraks. 

Uppreisnarmennirnir eru liðsmenn samtakanna ISIS, sem stendur fyrir Íslamska ríki Íraks og Sýrlands, sem berjast fyrir stjórnarhermenn í Anbar-héraði Íraks, en herinn er að mestu skipaður sjía-múslímum. Þetta kemur fram á vef New York Times.

Liðsmenn ISIS hafa einnig verið bendlaðir við árásir sem hafa verið gerðar annars staðar í landinu, en trúarbragðaátök hafa færst í aukana að undanförnu í landinu.

Alls létust 22 liðsmenn ISIS við sýnikennsluna í dag og 15 til viðbótar særðust að sögn lögreglu og hersins.

Á svæðinu fundust fleiri sprengiefni og þungavopn. 

Þá voru átta uppreisnarmenn handteknir er þeir gerðu tilraun til að flýja. 

 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert