Drakk viskí úr ruslafötu og lést

AFP

Spænskur karlmaður og í það minnsta sex aðrir voru lagðir inn á sjúkrahús í morgun í spænsku borginni Almeria eftir að þeir drukku úr viskíflösku sem þeir fundu í ruslafötu.

Kallað var eftir aðstoð sjúkrabifreiðar eftir að einn mannanna bað vin sinn um aðstoð. Stuttu seinna fundust tveir aðrir á götu í nágrenninu og var annar þeirra sá látni en hann var þrítugur Marokkóbúi.

Fjórir aðrir einstaklingar eru alvarlega sjúkir og þrír til viðbótar eru undir eftirliti. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert