„Ég rændi stúlkunum ykkar“

AFP

Leiðtogi Boko Haram, Abubakar Shekau, segir í myndskeiði sem AFP-fréttastofan hefur undir höndum að samtökin hafi rænt hundruðum skólastúlkna í Nígeríu í síðasta mánuði. „Ég rændi stúlkunum ykkar,“ segir Shekau í myndskeiðinu. „Ég mun selja þær á markaðnum.“

Alls var 276 skólastúlkum rænt í Shibok í Borno í norðurhluta Nígeríu 14. apríl sl. 50 þeirra tókst að flýja úr haldi en enn eru 223 í haldi mannræningjanna.

Myndskeiðið er 57 mínútur að lengd. Í myndskeiðinu hótar Shekau því að stúlkurnar verði seldar en málið og aðgerðarleysi stjórnvalda í málinu hefur vakið mikla alþjóðlega athygli.

Samantekt um ránið

Skjáskot af leiðtoga Boko Haram, Abubakar Shekau.
Skjáskot af leiðtoga Boko Haram, Abubakar Shekau. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert