Vilja bætt samskipti við Kúbu

Fidel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, og bróðir hans Raul sem …
Fidel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, og bróðir hans Raul sem tók við embættinu. AFP

Bandaríkjamenn af kúbverskum uppruna búsettir í Flórída-ríki í Bandaríkjunum virðast vera orðnir jákvæðari í garð stjórnvalda á Kúbu ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var af Florida International University og birt í dag.

Fram kemur í frétt AFP að 68% þeirra vilji koma á auknum samskiptum á milli Bandaríkjanna og Kúbu. Meðal ungra Bandaríkjamanna af kúbverskum uppruna var hlutfallið 90%. Enn fremur sögðust 69% vilja frjálsa för fólks til Kúbu og 52% vildu að viðskiptabannið sem bandarísk stjórnvöld settu á eyríkið árið 1962 í kjölfar byltingar Fidels Castro yrði afnumið.

Tæpur helmingur, eða 48%, er því hins vegar andvígur að viðskiptabannið verði fellt úr gildi en andstaðan væri minni ef því fylgdi aukinn þrýstingur á að mannréttindi væru virt af kúbverskum stjórnvöldum. Þá kemur fram í niðurstöðunum að 71% telji að viðskiptabannið hafi ekki skilað tilætluðum árangri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert