Íraski herinn hefur sókn gegn Íslamska ríkinu

Hermenn hliðhollir stjórnvöldum í Írak.
Hermenn hliðhollir stjórnvöldum í Írak. AFP

Her Íraks og vopnaðar stuðningssveitir hans hófu mikla sókn í dag gegn liðsmönnum Íslamska ríkisins með það að markmiði að taka borgina Tikrit úr höndum þeirra. Þetta kemur fram í frétt AFP og haft eftir háttsettum heimildarmanni innan hersins. Íraski herinn hefur tvisvar áður reynt að taka borgina en mistekist það.

Fram kemur í fréttinni að sókn hersins hafi hafist snemma í morgun og sótt hafi verið að Tikrit bæði frá suðri og suðvestri en borgin er um 160 kílómetra norður af höfuðborginni Bagdad. Sóknin var hafin í þeim tilgangi að koma Íslamska ríkinu í opna skjöldu en liðsmenn þess hafa verið uppteknir í átökum við hersveitir Kúrda í norðurhluta landsins.

Tikrit hefur verið á valdi Íslamska ríkisins frá því 11. júní en sókn liðsmanna þess í Írak hófst skömmu áður. Sóknin kom íröskum stjórnvöldum í opna skjöldu og hörfaði her landsins undan Íslamska ríkinu. Ekkert virtist geta stöðvað framsókn þess þar til hersveitum Kúrda tókst það nýverið með aðstoð frá vestrænum ríkjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka