Vél AirAsia snúið við vegna bilunar

AFP

Flugmenn vélar frá AirAsia, sem var á leið frá Kuala Lumpur til Jeddah í dag hættu urðu að snúa við vegna bilunar og lenda vélinni aftur í Malasíu. Fyrst þurfti vélin að losa sig við eldsneyti með því að hringsóla í loftinu.

Flugfélagið segir að um „minniháttar flugatvik“ hafi verið að ræða og engin hætta verið á ferðum.

Vélinni var því lent í Kuala Lumpur án nokkurra vandræða.

Vél frá AirAsia hrapaði í Jövuhaf í desember. Allir sem voru um borð, 162 farþegar og áhöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert