Ákærður fyrir þrefalt morð

Mynd af unga fólkinu sem var myrt. Deah Shaddy Barakat, …
Mynd af unga fólkinu sem var myrt. Deah Shaddy Barakat, 23 ára, eiginkona hans, Yusor Mohammad, 21 árs og systir hennar, Razan Mohammad Abu-Salha, 19 ára. Af Twitter

Saksóknari í Norður-Karólínu hefur ákært mann fyrir morð á þremur námsmönnum sem allir eru múslímar.

Að sögn lögreglu skaut Craig Hicks, ungmennin til bana vegna ósættis um bílastæði. Ekki hefur verið útilokað að morðin tengist hatri á múslímum en að minnsta kosti tólf skotvopn voru fjarlægð af heimili hans eftir að hann gaf sig fram við lögreglu eftir morðin.

Samkvæmt frétt BBC segir eiginkona hans, Karen Hicks, að trúarbrögð komi ekki morðunum við og að hann komi eins fram við alla.

Deah Shaddy Barakat, eiginkona hans Yusor Mohammad Abu-Salha systir hennar, Razan Mohammad Abu-Salha, fundust látin í íbúð sinni í háskólabænum Chapel Hill í síðustu viku.

Hicks, sem var nágranni ungmennanna, á að mæta fyrir dómara þann 4. mars vegna morðanna. Hann situr í gæsluvarðhaldi án möguleika á lausn gegn gjaldi.

Svívirðilegt og hrottafengið morð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert