Segir konuna hafa vitað að „kærastinn“ væri kona

Gayle Newland mætir í dómsal.
Gayle Newland mætir í dómsal. Skjáskot af bbc.com

Hin 25 ára Gayle Newland sem ákærð hefur verið fyrir að nauðga vinkonu sinni sem taldi hana vera karlmann kveðst ekki sek. Segir hún konuna hafa verið meðvitaða um hennar rétta sjálf frá upphafi.

Konan taldi sig vera að njóta ásta með Kye Furtune sem hún hafði kynnst á Facebook. Þegar Furtune þessi og konan ákváðu að hittast setti hann fram þá bón að konan væri með bundið fyrir augun allan tímann þar sem hann skammaðist sín fyrir ör sem hann hafði hlotið vegna veikinda og eftir bílslys. Á síðasta ástarfundi þeirra lyfti hún hinsvegar grímunni og þá var enginn karlmaður sjáanlegur heldur stóð Newland fyrir framan hana.

Frétt mbl.is: Kærastinn reyndist kona

Fyrir Chester Crown réttinum í dag sagðist Newland hafa búið Facebook notandann Kye Furtune til þegar hún var 15 eða 16 ára gömul. Hún hafi átt erfitt með að vera hún sjálf eftir að hún uppgötvaði að hún væri samkynhneigð og að raunar hafi hún ekki greint fjölskyldu sinni frá kynhneigð sinni fyrr en stuttu áður en hún var handtekin. Hún sagðist hafa kynnst hinum meinta þolanda á skemmtistað árið 2011. Hún hafi sagt henni að hún væri samkynhneigð og notaði Kye Furtune til að hafa samband við konur. Tveimur dögum síðar hafi Furtune og konan orðið Facebook vinir.

Furtune og konan stofnuðu í kjölfarið til ástarsambands sem entist í tvö ár og voru þau jafnvel trúlofuð þegar konan komst að því sanna.

Horfði á sjónvarpið með bundið fyrir augun

Hinn meinti þolandi neitar þó með öllu að hafa haft nokkra vitneskju um að Furtune væri í raun Newland. „Ef ég gæti snúið aftur og öskrað á mig myndi ég gera það. Þetta lítur fáránlega út á blaði,“ sagði konan fyrir rétti samkvæmt BBC.

Lögmaður Newland sagði við konuna fyrir rétti að hún hefði vitað hver Furtune væri allan tímann en að hún hafi ekki þorað að segja lögreglunni sannleikann. Því hafnaði konan og sagðist hafa talið Furtune vera karlmann frá því að hún skrifaði fyrst til hans á Facebook.

„Ég ætla ekki að stinga upp á því eitt augnablik að það hafi ekki verið erfiðleikar í þínu lífi áður en þú hittir Gayle, en það er ekki eðlilegt að eyða klukkutímum í íbúðinni sinni með kærastanum sínum að horfa á sjónvarpið þegar þú sérð ekki það sem er á skjánum,“ sagði lögmaðurinn.

„Það var eðlilegt fyrir okkur. Eftir á að hyggja vildi ég að ég hefði rifið grímuna af fyrr,“ svaraði konan sem sagði þau hafa rætt saman og kyssts yfir sjónvarpinu. Hún sagðist hafa þráð ást upp að því aumkunarverðu marki.

Lögmaður Newman gaf einnig í skyn að hún hlyti að hafa gert sér grein fyrir því að Newman væri að nota gervilim þegar þær stunduðu kynlíf.

„Ef ég hefði gert mér grein fyrir því hefði ég aldrei sofið hjá Gayle aftur og aftur. Ef ég hefði haft minnstu hugmynd um að ég væri ekki að njóta ásta með manni væri engin leið að ég hefði hitt hana aftur og leyft henni að gera það aftur og aftur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert