Árás í nágrenni flugvallar í Afganistan

Frá Kandahar í Afganistan. Árásin var gerð á markaði rétt …
Frá Kandahar í Afganistan. Árásin var gerð á markaði rétt hjá flugvellinum. AFP

Átta óbreyttir borgarar létust og tíu særðust í árás sem gerð var í nágrenni flugvallar í Kandahar í Afganistan. 

Þrír árásarmenn féllu einnig í árásinni. Þeir hófu skothríð á markaði í nágrenni flugvallarins kl. 6.20 í morgun að staðartíma. 

Þetta kemur fram í frétt CNN.

Talibanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en skotmarkið var erlendir hermenn. 

Kandahar er önnur stærsta borg Afganistans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert