Kærður fyrir líkamsárás á fjöldafundi Trump

Af blaðamannafundi Trump fyrr í vikunni.
Af blaðamannafundi Trump fyrr í vikunni. AFP

78 ára gamall hvítur maður sem kýldi þeldökkan mótmælanda í andlitið á fjöldafundi auðkýfingsins og forsetaframbjóðandans Donald Trump, hefur verið kærður fyrir líkamsárás.

Maðurinn, sem heitir John McGraw, hefur einnig verið kærður fyrir barsmíðar og róstusemi sem hann á að hafa viðhaft í gærkvöldi á kosningafundi Trump.

Myndskeið af atvikinu sýna McGraw skyndilega kýla unga þeldökka manninn í andlitið þar sem hann var að ganga upp stiga og út af leikvangnum, ásamt öðrum mótmælendum, í fylgd lögreglu. McGraw var þó ekki handtekinn fyrr en í morgun, eftir að myndskeiðið hafði náð mikilli dreifingu á vefnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert