Engin sprengja í Brussel

Belgísk lögregla í Brussel.
Belgísk lögregla í Brussel. AFP

Maðurinn sem grunaður var um að hafa sprengju innanklæða í miðborg Brussel reyndist ekki hafa neitt slíkt á sér.

Frétt mbl.is: Sprengjumaður í Brussel

Aðgerð lögreglu er nú lokið en maðurinn reyndist vera nemandi í kjarnorkugeislunarfræði við háskólann í borginni.

Sprengjusveit hafði verið kölluð til vegna mannsins, auk þess sem götum var lokað og byggingar rýmdar, en viðbúnaðarstig er hátt í Brussel, en þjóðhátíðardagur Belga er á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert