Breska þingið hefur samþykkt frumvarp forsætisráðherrans Theresu May um að hefja brottgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Tveimur breytingartillögum, sem lávarðadeild þingsins hafði lagt fram, var hafnað.
Frumvarpið verður nú lagt í heild sinni fyrir lávarðadeildina, en breytingartillögur hennar hljóðuðu upp á að vernda réttindi ríkisborgara ESB í Bretlandi og að auka áhrif þingsins á lokaniðurstöðu samningaviðræðna um brottgönguna.