Þrátt fyrir að von leitarmanna um að finna fólk á lífi í húsarústum eftir jarðskjálftann í Mexíkó fari dvínandi glæddist vonarneisti í dag þegar lítill smáhundur fannst á lífi. Hann fannst sex dögum eftir skjálftann. Sky fréttastofa greinir frá á Twitter.
Á þriðjudaginn í síðustu viku varð jarðskjálfti að 7,1 stig að stærð í Mexíkóborg. Staðfest hefur verið að 300 manns létust. Í fyrradag varð annar skjálfti að stærðinni 6,2 stig. Óttast er að seinni skjálftinn dragi úr líkum að fleirum verði bjargað þar sem brak færðist til og frá í skjálftanum.
Hins vegar halda björgunarsveitarmenn áfram leit sinni og notast við leitarhunda og nýjustu tækni til að reyna að nema líf í rústunum. Á fyrstu þremur dögunum var 69 manns bjargað á lífi. Frá því á föstudaginn hafa einungis lík verið dregin upp úr rústunum að undanskildum hundinum.
Rescued animals bring a glimmer of hope to Mexico in the earthquake aftermath pic.twitter.com/HiSda6mJCg
— Sky News (@SkyNews) September 25, 2017