Alríkisdómarinn Theodore Chuang setti í dag lögbann á ferðabann Donald Trump Bandaríkjaforseta. Er Chuang annar alríkisdómarinn til að setja lögbann á ferðabannið, en Derrick Watson, alríkisdómari á Hawaii, setti slíkt bann á í gær.
Um er að ræða þriðju tilraun forsetans til að banna ferðalög ríkisborgara sjö múslimaríkja til Bandaríkjanna. Ferðabannið átti að öðlast gildi í dag og er harðasta útgáfa þess til þessa. Fyrstu tvær útgáfurnar kváðu á um 90 daga bann, en í nýjustu útgáfunni var bannið ótímabundið.
Sagði Chuang það, að banninu væri beint gegn múslimum, brjóta í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna og að ekkert hefði í raun breyst frá fyrri tveimur útgáfunum, sem dómstólar settu einnig lögbann á.
Benti hann á, líkt og í fyrri úrskurðum, að Trump hefði ítrekað heitið því í kosningabaráttu sinni að banna komu múslima til Bandaríkjanna.
Hundruð mótmælenda komu saman framan við Hvíta húsið í dag og kölluðu „Ekkert bann við múslimum!“, „Ekkert bann, enginn múr og frelsi fyrir alla!“ sem vísar í annað kosningaloforð forsetans um að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Jemeninn Fathi al-Huthaifi sagði AFP-fréttastofunni að kona sín væri föst í Sádi-Arabíu vegna ferðabannsins. „Hún er að bíða eftir vegabréfsáritun, en ferðabannið tefur hana og tefur,“ sagði Huthaifi sem á fimm börn sem öll hafa bandarískan ríkisborgararétt.
„Þegar við heimilum bann við einum hópi heimilum við einnig bann við öðrum hópum,“ sagði mannréttindasinninn Linda Sarsour.
Talið er líklegt að bandarísk stjórnvöld áfrýi lögbanninu.