Morðdeildin komin með lát Sherman hjónanna

Barry og Honey Sherman fundust látin á heimili sínu á …
Barry og Honey Sherman fundust látin á heimili sínu á föstudag. Skjáskot af vef BBC

Morðdeild lögreglunnar í Toronto hefur tekið yfir rannsóknina á dularfullu andláti milljarðamæringsins Barry Sherman og Honey konu hans. Er andlát hjónanna, sem fundust látin á heimili sínu í Toronto á föstudag, nú rannsakað sem „grunsamlegt“.

Áður höfðu kanadískir fjölmiðlar haft eftir heimildamönnum innan lögreglunnar að talið væri að Sherman, sem var einn af ríkustu mönnum Kanada, hefði myrt konu sína og tekið að því loknu eigið líf. Börn hjónanna sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þau drógu slíkar skýringar í efa.

BBC segir krufningu á líkum þeirra hjóna hafa leitt í ljós að þau hafi bæði dáið vegna þess að þrengt hafi verið að öndunarvegi þeirra.

Gagnrýndu lögreglu fyrir að deila tilgátu með fjölmiðlum

Í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér á sunnudagkvöld, var niðurstaða krufningar staðfest og tilkynnt að morðdeild lögreglunnar í Toronto hefði tekið yfir rannsókn málsins. Áður hafði lögregla greint frá því að ekki stæði yfir leit að neinum sem grunaður væri um að hafa myrt þau.

„For­eldr­ar okk­ar deildu lífs­gleði og trú­festu í garð fjöl­skyldu sinn­ar og sam­fé­lags­ins, sem er í fullu ósam­ræmi við þenn­an óheppi­lega orðróm sem fjöl­miðar hafa deilt varðandi dauða þeirra,“ sagði í yf­ir­lýs­ingu sem fjögur börn hjónanna sendu frá sér í gær.

 „Við erum í áfalli og teljum óábyrgt að lögreglumenn hafi deilt með fjölmiðlum tilgátu sem hvorki fjölskylda, vinir né kollegar þeirra telja vera sanna.“

Kölluðu börnin því næst eft­ir ít­ar­legri og hlut­lausri glæp­a­rann­sókn og að fjöl­miðlar hætti að greina frá dánar­or­sök þar til rann­sókn­inni sé lokið.

Fast­eigna­sali Sherm­an-hjón­anna fann lík þeirra, en hann hafði verið að aðstoða þau við að selja hús sitt. Eng­in merki voru um inn­brot.

Lagadeilur við börn frænda

Sherm­an var stofn­andi og stjórn­ar­formaður lyfjaris­ans Apotex, sem sel­ur sam­heita­lyf víða um heim. Hann var einn af rík­ustu mönn­um Kan­ada og þekkt­ur fyr­ir góðgerðarstarf sitt.

Sherman var efnilegur námsmaður og hóf störf í lyfjaiðnaðinum í gegnum fyrirtæki frænda síns Empire Laboratories meðfram háskólanámi. Hann keypti svo fyrirtækið þegar að frændi hans dó og stofnaði Apotex, sem gerði hann að milljarðamæringi og sem rúmlega 1.000 manns starfa hjá í dag.

Það komu þó upp lagadeilur innan fjölskyldunnar og fullyrtu börn frænda hans að hann hefði svindlað á þeim og kröfðust þau þess að fá hlut í Apotex. Dómari vísaði þeirri kröfu frá fyrr á þessu ári.

Sherman sætti einnig rannsókn vegna grunsemda um að hann hefði haldið óviðeigandi fjáröflunarboð fyrir forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, áður en hann tók við embætti. Trudeau var einn fjölmargra sem vottaði fjölskyldunni samúð sína í gær og sagði hann á Twitter alla hafa verið snortna af hug­sjón­um og anda Sherman hjónanna.

Barry Sherman á yngri árum. Hann hóf störf í lyfjaiðnaðinum …
Barry Sherman á yngri árum. Hann hóf störf í lyfjaiðnaðinum í gegnum fyrirtæki frænda síns Empire Laboratories meðfram háskólanámi og keypti svo fyrirtækið þegar að frændi hans dó og stofnaði Apotex. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert