Flugmaðurinn óhæfur í flugslysi Sala

Blómvendir við mynd af Emiliano Sala sem sett var upp …
Blómvendir við mynd af Emiliano Sala sem sett var upp við æfingasvæði Nantes. AFP

Flugmaðurinn sem flaug vélinni sem fórst í Ermarsundi í janúar með þeim afleiðingum að hann og knattspyrnumaðurinn Emiliano Sala létust, var vanhæfur til þess að fljúga vélinni í þeim aðstæðum sem voru þetta örlagaríka kvöld.

Mánu­dags­kvöldið 21. janú­ar fór Sala af stað frá Nan­tes til Car­diff í lít­illi eins hreyf­ils vél af gerðinni Piper Mali­bu ásamt flug­manninum David Ibbotson. Um klukk­an 20.30 hvarf vél­in af rat­sjám. Flak vélarinnar fannst ekki fyrr en tveimur vikum síðar.

BBC greinir frá því í dag að rannsókn á slysinu hafi leitt í ljós að Ibbotson var ekki hæfur til þess að fljúga í myrkri. Flugleyfi hans var takmarkað við flug í dagsbirtu, auk þess sem hann var litblindur. Sérfræðingur sagði við BBC að til þess að geta flogið í myrkri þurfi að vera hægt að greina á milli grænna og rauðra ljósa.

„Það að fljúga utan þess tíma sem réttindin segja er ólöglegt og getur haft áhrif á það hvort tryggingar greiði út bætur,“ segir sérfræðingurinn við BBC.

Samkvæmt upplýsingum átti vélin upphaflega að fara í loftið klukkan níu um morguninn, en var frestað til klukkan sjö um kvöldið. Sala hafði óskað eftir því til þess að geta kvatt gömlu liðsfélaga sína í Nantes áður en hann hélt á sína fyrstu æfingu með Cardiff.

Þegar vélin tók á loft var liðin rúm klukkustund frá sólsetri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert