Trump ósáttur með Hæstarétt

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump húðskammaði Hæstarétt Bandaríkjanna á Twitter eftir að kæru Texasríkis vegna forsetakosninganna vestanhafs var vísað frá fyrir helgi. 

„Hæstiréttur hefur brugðist okkur. Engin viska! Ekkert hugrekki!“ skrifaði Trump meðal annars á Twitter. Frávísunin virðist þýða að baráttu Trumps til að fá úrslitum forsetakosninganna hnekkt sé lokið en hann segir hana rétt að byrja.

Stjórnvöld í Texas lögðu fram kröfu á þriðjudag um að hæstiréttur ógilti úrslitin í fjórum ríkjum; Georgíu, Michigan, Penn­sylvan­íu og Wiscons­in.

Málið var sótt af Texas-ríki og stutt af rík­is­sak­sókn­ur­um 18 ríkja og 106 þing­mönn­um repúblikana.

„Hæstiréttur hafði NÚLL áhuga á málsatvikum í mestu kosningasvikum sem nokkurn tímann hafa verið framin í Bandaríkjunum,“ skrifaði Trump enn fremur á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert