Biden: „Við sáum hvað var í uppsiglingu“

Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna ávarpaði þjóð sína í kvöld frá Delaware. Biden lýsti atburðum gærdagsins við þinghús Bandaríkjaþings sem „einum af myrkustu dögum í sögu þjóðar okkar“, og sem „árás, bókstaflega, á helgistað frelsisins“.

„Þetta var ekki mótþrói, þetta var ekki óregla. Þetta var óreiða,“ sagði Biden og kallaði múginn sem braust inn í þinghúsið „hryðjuverkamenn“.

„Og ég vildi óska þess að við gætum sagt að þetta hefði komið á óvart. En það er ekki satt. Við sáum hvað var í uppsiglingu,“ sagði Biden. „Síðustu fjögur ár höfum við haft forseta sem hefur gert andúð sína á lýðræði okkar, á stjórnarskrá okkar, á reglum laganna, greinilega.“

Biden sagði svo að múgurinn í gær hefði fengið gjörólík viðbrögð frá lögreglu ef hann hefði ekki verið að mestu leyti hvítur. 

„Það getur enginn sagt mér, ef þetta hefði verið hópur af Black Lives Matter-mótmælendum í gær, að þeir hefðu ekki fengið allt öðruvísi viðbrögð frá lögreglu en þessir fantar sem ruddust inn í þinghúsið,“ sagði Biden og bætti við að barnabarn hans hefði sent honum myndir af viðbrögðum lögreglu þegar kynþáttafordómum var mótmælt síðasta sumar. 

Joe Biden ávarpar þjóð sína í kvöld.
Joe Biden ávarpar þjóð sína í kvöld. AFP

Biden til­nefndi einnig Merrick Garland formlega sem dóms­málaráðherra í stjórn sinni. Garland er miðjusinnaður dóm­ari sem re­públíkan­ar höfnuðu sem hæsta­rétt­ar­dóm­ara fyr­ir fimm árum. Hann starfar í dag sem dóm­ari við áfrýj­un­ar­dóm­stól í Washingt­on og er þekkt­ur fyr­ir að vera hóf­sam­ur og frjáls­lynd­ur og er ekki flokks­bund­inn.

Tilnefning Joe Biden til embættis dómsmálaráðherra, Merrick Garland.
Tilnefning Joe Biden til embættis dómsmálaráðherra, Merrick Garland. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert