Veiti 85% vörn gegn alvarlegum Ómíkron-veikindum

Bólusett í Miami í Flórída. Nú er víða mælt með …
Bólusett í Miami í Flórída. Nú er víða mælt með örvunarbólusetningu. AFP

Breskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að örvunarskammtur af bóluefni gegn Covid-19 geti líklega veitt fólki um 85% vörn gegn alvarlegum veikindum af völdum Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. 

Verndin sem bóluefnin bjóða upp á gegn Ómíkron-smiti er þó aðeins minni en sú vernd sem bóluefnin veita gegn fyrri afbrigðum veirunnar. Samkvæmt niðurstöðum vísindamannanna ætti viðbótarskammtur aftur á móti að koma mörgum hjá sjúkrahúsinnlögnum vegna Covid-19. 

BBC greinir frá. 

Ómíkron-afbrigðið breiðist nú hratt um heiminn en það er talið töluvert meira smitandi en fyrra ráðandi afbrigði veirunnar, Delta-afbrigðið. 

Enn margt óvitað um Ómíkron-afbrigðið

Niðurstöður vísindamannanna, sem starfa við Imperial College í Lundúnum, eru byggðar á þeim takmörkuðu upplýsingum sem liggja fyrir um Ómíkron-afbrigðið. Vísindamennirnir segja enn mikla óvissu í kringum afbrigðið. Til dæmis er enn ekki á hreinu hversu væg eða alvarleg veikindi af völdum Ómíkron-afbrigðisins eru. 

Bóluefni gegn Covid-19 kenna líkamanum hvernig hann á að berjast við sjúkdóminn. En þau bóluefni sem nú eru í umferð voru ekki hönnuð til þess að takast á við Ómíkron. Vegna þessa hefur fólk víða um heim, til dæmis á Íslandi, verið hvatt til þess að þiggja örvunarskammt af bóluefni til þess að byggja upp meira mótefni gegn kórónuveirunni sem veldur Covid-19.

Í samtali við mbl.is í gær sagði framkvæmdastjóri Sameindar, fyrirtækis sem m.a. framkvæmir mótefnamælingar, að magn vernd­andi mót­efna sem mynd­ast eft­ir bólu­setn­ingu gegn Covid-19 marg­fald­ist eft­ir að fólk fær þriðja skammt­inn af bólu­efn­inu, miðað við þær mót­efna­mæl­ing­ar sem Sam­eind hef­ur fram­kvæmt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert