Heitasta vikan frá upphafi mælinga

Fyrsta vikan í júlí var sú heitasta frá upphafi mælinga …
Fyrsta vikan í júlí var sú heitasta frá upphafi mælinga á heimsvísu. AFP

Fyrsta vikan í júlí var sú heitasta síðan mælingar hófust. Þetta sýna bráðabirgðamælingar Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO).

61 þúsund manns létust í hitabylgjunni sem reið yfir í Evrópu síðasta sumar, að því er fram kemur í rannsókn breska vísindatímaritsins Nature Medicine. Er þar sömuleiðis kallað eftir aðgerðum til þess að vernda viðkvæma hópa komi til fleiri hitabylgja á næstu árum. 

AFP

Dauðsföll gætu orðið 94 þúsund næstu 17 árin

Sé ekkert gert gætu orðið yfir 94 þúsund dauðsföll sem rekja má til hnattrænnar hlýnunar fyrir árið 2040, að því er fram kemur í rannsókninni.

Greint hef­ur verið frá því að árið í ár sé El Niño-ár. El Niño-tíma­bil er þegar nátt­úru­leg hita­sveifla í aust­ur­hluta Kyrra­hafs­ins á sér stað

Hitamet hafa verið slegin víða að undanförnu, þar á meðal var meðalhiti í júní sá hæsti sem mælst hefur hjá Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert