Örlítill hagvöxtur á evrusvæðinu

Aðsetur seðlabanka Evrópu í Frankfurt, í Þýskalandi.
Aðsetur seðlabanka Evrópu í Frankfurt, í Þýskalandi. AFP

Efnahagur evrusvæðisins óx örlítið á öðrum ársfjórðungi, en vöxturinn var samt sem áður minni en við var búist. Endurskoðun fyrsta ársfjóðungs leiddi í ljós betri niðurstöðu en áður hafði komið fram.

Um er að ræða 0,1% hagvöxt en sam­kvæmt Eurostat, hag­stofu Evrópusambandsins, var því spáð að efnahagur yxi um 0,3% á ársfjórðunginum.

Aftur á móti endurskoðaði Eurostat mælingar sínar frá fyrsta ársfjórðungi, sem leiddi í ljós að þá hafi einnig verið 0,1% hagvöxtur, en ekki stöðnun eins áður hafði komið fram.

Almennt að staðna

„Evrópska hagkerfið er almennt að staðna. Það er að kljást við háa stýrivexti, orkuverð og hægagang á viðskiptum,“ segir Charlotte de Montpellier, sérfræðingur hjá hollenska bankanum ING.

Seðlabanki Evrópu hefur hækkað vexti til þess að að sporna gegn verðbólgu.

Þýskaland, stærsta efnahagskerfi Evrópu, er komið í efnahagslega lægð. Ol­afs Scholz kanslari t­ikynnti á dögunum að gripið verði til um­fangs­mik­illa aðgerða til að létta byrðum af at­vinnu­líf­inu og draga úr skri­fræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert