Segja yfir 100 drepna í skotárás Ísraela

Palestínumenn fá læknisaðsotð á Kamal Edwas-sjúkrahúsinu í Beit Lahia á …
Palestínumenn fá læknisaðsotð á Kamal Edwas-sjúkrahúsinu í Beit Lahia á á norðurhluta Gasasvæðisins eftir árásina. AFP

104 voru drepnir og 750 særðust í Gasaborg í morgun, að sögn heilbrigðisráðuneytitins á Gasasvæðinu, þegar ísraelskir hermenn hófu skothríð á almenna borgara sem höfðu safnast saman þar sem dreift var hjálpargögnum á svæði Palestínumanna.

Heilbrigðisráðuneytið er undir stjórn Hamas-samtakanna.

AFP

Talsmaður ráðuneytisins, Ashraf al-Qudra, segir að um fjöldamorð hafi verið að ræða og að skotárásinni hafi verið beint að almennum borgurum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert