Teiknuðu friðarmerki á stétt Stjórnarráðsins

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur konum sem höfðu teiknað friðarmerki á stéttina fyrir framan Stjórnarráðið við Lækjargötu á fjórða tímanum í nótt. Það sást til kvennanna og hafði lögreglan uppi á þeim og ræddi við þær án þess að hafa frekari afskipti af þeim. Konurnar, sem eru íslenskar, teiknuðu friðarmerki með krítum á stéttina. Að sögn lögreglu er búið að þrífa teikninguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert