Vistmenn yfirgefa Byrgið - lögreglan í Reykjavík kveðst kvíða framhaldinu

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is
„Við erum kvíðnir um framhaldið," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, en undanfarna daga hefur borið á tilkynningum til lögreglu vegna vistmanna sem yfirgefið hafa meðferðarheimilið Byrgið í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um málefni heimilisins og forstöðumanns þess, Guðmundar Jónssonar. Um 20 manns hafa yfirgefið vistheimilið, að því er fram kom í Morgunblaðinu í vikunni.

Geir Jón segir að lögreglan sé farin að taka eftir breytingum vegna þessa. „Menn sem við vissum að væru þarna inni [í Byrginu] og vorum afskaplega glaðir með að væru ekki úti á götunni eru komnir út," segir hann.

Geir segir að þarna á meðal séu einstaklingar sem séu þekktir hjá lögreglunni fyrir fíkniefnaneyslu og erfið samskipti og mikið hafi borið á. Þann tíma sem þessir menn hafi ekki verið á götunni hafi róast yfir.

Þau mál sem tilkynnt hafi verið lögreglu varði ofbeldi, neyslu fíkniefna og ýmislegt sem því fylgi.

Það hafi verið sorglegt að frétta af því að um 20 manns hafi yfirgefið Byrgið. Fólkið fari ekki allt beint á götuna, „en við merkjum að það er byrjað," segir Geir. Þegar Byrgið hafi farið í fulla starfsemi á sínum tíma hafi farið af götunni nokkuð stór hópur ungs fólks sem hafi verið illa farinn af neyslu fíkniefna og búið á götunni.

„Við kvíðum því að það fari aftur í sama munstrið og sama ferilinn og áður þekktist," segir hann. Fólkið eigi í hús að venda til að byrja með en fari það á kaf í neyslu endi það á götunni.

Í hnotskurn
» Félagsmálaráðuneytið stöðvaði á dögunum tímabundið greiðslur til Byrgisins að tilmælum Ríkisendurskoðunar sem nú fer yfir mál þess.
» Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir að stefnt sé að því að ljúka skoðuninni í næstu viku. Unnið sé að málinu af fullum krafti.
» Um 20 manns munu hafa yfirgefið Byrgið undanfarna daga.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert