Þrír 18 ára ökumenn stöðvaðir á ofsahraða í borginni um helgina

mbl.is/Kristinn

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að því er fram kemur á Lögregluvefnum. Í þremur tilvikum var um ofsaakstur að ræða en þar áttu í hlut ökumenn sem allir eru 18 ára.

Sá fyrsti var stöðvaður í útjaðri Hafnarfjarðar á föstudagskvöld en bíll hans mældist á 130 km hraða.

Nokkrum klukkutímum síðar var annar tekinn á Reykjanesbraut í Kópavogi, en sá ók líka á 130. Á báðum þessum stöðum er leyfður hámarkshraði 70 km.

Þriðji pilturinn var stöðvaður á Sæbraut aðfaranótt sunnudags, en bíll hans mældist á 124 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 60.

Þá kemur fram á Lögregluvefnum að níu ökumenn hafi verið teknir fyrir ölvunarakstur um helgina. Þetta voru átta karlmenn á aldrinum 25-47 ára og ein kona, 33 ára. Tveir þessara ökumanna voru stöðvaðir á föstudagskvöld, þrír aðfaranótt laugardags og fjórir aðfaranótt sunnudags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert