Færð fer versnandi á Holtavörðuheiði

Veður og færð fara versnandi á Holtavörðuheiði og eru vegfarendur lítilla bíla beðnir að leggja ekki á heiðina fyrir nóttina. Að sögn Vegagerðarinnar er veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur lokaður og einnig er varað við snjóflóðahættu á veginum um Óshlíð.

Þá er vegurinn frá Súðavík inn í Ögur í Ísafjarðardjúpi ófær vegna snjóflóða og ekki verður mokað vegna sjónflóðahættu fyrr en í fyrramálið.

Einnig er varað við óveðri í sunnanverðu Snæfellsnesi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert