Bíll valt í Svínahrauni

mbl.is/Guðmundur Karl

Bílvelta varð á ellefta tímanum í kvöld á Suðurlandsvegi fyrir ofan Litlu kaffistofuna. Jeppabifreið sem ók upp Draugahlíð fór útaf efst í brekkunni og endaði á hvolfi. Einn var í bílnum og slapp ómeiddur en jeppinn er töluvert skemmdur. Mikil hálka er í Svínahrauni og á Hellisheiði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert