Skilorðsbundið fangelsi fyrir sígarettusmygl

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt þrjá karlmenn í 45 daga skilorðsbundið fangelsi hvern og til að greiða 300 þúsund krónur í sekt fyrir aðild að sígarettusmygli. Einn mannanna var fundinn sekur um að taka við 10 kössum, hverjum með 500 kartonum af sígarettum, úr rússneskum togara sem lá í Raufarhöfn, og hinir tveir voru fundnir sekir fyrir að kaupa 550 karton af skipverjum togarans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert