Hundur réðist á lögreglumann í húsleit

Lögregla handtók í gærkvöldi par á fimmtugsaldri eftir húsleit í íbúð þeirra í austurborg Reykjavíkur. Í íbúðinni fundust tæplega 100 grömm af ætluðu amfetamíni sem lögreglan telur að hafi verið ætluð til sölu. Við inngöngu í íbúðina veittist þýskur Schäfer hundur að einum lögreglumannanna og þurfti annar lögreglumaður að beita varnarúða á hundinn til að stöðva hann.

Lögreglan segir, að hundurinn hafi fengið viðeigandi aðhlynningu í samráði við dýralækni hjá Dýraspítalanum á eftir.

Parið var fært á lögreglustöðina til yfirheyrslu í gærkvöldi og hefur nú verið sleppt úr haldi, telst málið vera upplýst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert