Rafmagnslaust víða um land

Rafmagn fór af í dag víða um land.
Rafmagn fór af í dag víða um land. mbl.is/Brynjar Gauti

Rafmagn fór af á stórum hluta landsins nú síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er ekki vitað að svo stöddu hvað hafi gerst, en unnið er að því að koma rafmagni aftur á. Rafmagn fór einnig af í augnablik á a.m.k. hluta höfuðborgarsvæðisins og sló út tölvum og öðrum raftækjum.

Rafmagn fór af á Vesturlandi, Vestfjörðum og Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rafmagn aftur komið á a.m.k. að hluta þessara svæða.

Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur sló hitaveitudælum út tímabundið vegna rafmagnsleysisins. Þær voru ræstar á ný skömmu síðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert