Friðrik gerði jafntefli í dag

Friðrik Ólafsson gerði jafntefli við hollenska skákmanninn Willy Hendriks í 8. umferð minningarmótsins um Max Euwe, sem fer fram í Hollandi. Er Friðrik með 3,5 vinninga eftir átta umferðir og er jafn Hendriks og Argentínumanninum Oscar Panno í 5.-8. sæti. Öðrum skákum er ekki lokið í umferðinni. Þeir Friðrik og Panno mætast í lokaumferðinni á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert