17 ára og réttindalaus olli árekstri og stakk af

Sautján ára stúlka lenti í umferðaróhappi í Kópavogi í vikunni og stakk af frá vettvangi. Til hennar náðist skömmu síðar en stúlkan hefur aldrei öðlast ökuréttindi, að sögn lögreglu. Aðspurð um ökuferðina sagðist stúlkan hafa verið að skutla vinkonu sinni.

Önnur stúlka, sem var líka að gera vinum sínum greiða, kom við sögu lögreglujjar á dögunum. Sú er aðeins 14 ára en stúlkan ók bíl foreldra sinna á bílskúrshurðina heima hjá þeim. Af því hlutust töluverðar skemmdir en upphaflegur tilgangur bílferðarinnar var að fara út í sjoppu. Þangað ætlaði stúlkan að aka nokkrum vinum sínum en enginn í hópnum nennti að ganga þá leiðina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert