Sérsveitin og fíkniefnadeildin gerðu átak í nótt

Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór ásamt sérsveitarmönnum inn á marga skemmtistaði í borginni í nótt og var að sögn varðstjóra gerð leit á um 100 manns og komu 6 fíkniefnamál upp í kjölfar þessa átaks. Einnig fundust ólögleg vopn á tveimur mönnum sem voru með stóra hnífa á sér.

Eitt líkamsárásarmál kom upp í Hafnarstræti í Reykjavík í nótt, þar var maður sleginn í andlitið er hann gekk á milli tveggja manna sem voru að slást. Brotnaði tönn við höggið og árásarmaðurinn gistir nú í fangageymslum lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert