Flestir á löglegum hraða í Hvalfjarðargöngum

Frá Hvalfjarðargöngum
Frá Hvalfjarðargöngum mbl.is/Sverrir

Brot 59 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til miðvikudags eða á tæplega 46 klukkustundum. Vöktuð voru 4.209 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Þrír óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97 km hraða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Brot 230 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á þriðjudag og miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á liðlega átján klukkustundum fóru 10.275 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert